Kisuskott

Halló. snúddist um

14.09.2008 22:24:49 / haflina

Hornstrandir.

Í byrjun ágúst  fór ég í smá ferðalag í Reykjafjörður nyrðri sem er ótrúleg náttúru perla ekki síðri en Hælavík sem ég fór fyrir tveim árum síðan með sama hóp.
Þetta var mjög gaman en að sjálfsögðu varð ég að gera ferðina erfiðari en hún átti að vera. Við silgdum frá Norðurfyrið mánudaginn 4 ágúst um hádeigisbilið í Reykjarfjörð og þið ykkar sem þekkja mig þá verð ég sjóveik á bryggjuni :lol: hvað þá að sigla.. og að sjáfsögðu var báturinn skrúfuvana því að ein skrúfan af þrem var biluð  sem lengdi siglinguna til muna og ekki má gleyma að við þurftum að sigla fyrst tveim fjörðum lengra og til baka ...þá var Lína orðin græn... um kl tvö þegar við komum í land var ég mjög feginn... en það entist ekki lengi því að mótökunefndin í Reykjarfyrði er þvílíkur aragrúi af Kvön... já og fyrir þau ykkar sem ekki vita, þá er ég er með MJÖG mikið ofnæmi fyrir henni að það er til vandræða, en mér tókst að komast upp í húsið og hellti í mig ofnæmislyfjum og asthmapústum, fann pínu fyrir ofnæmi en það var ekki svo mikið. Við komum okkur fyrir og höfðum það náðugt það sem eftir var dagsins, fórum í sund og slöppuðum af.
Dagur tvö. þriðjudagur. Það var ákveðið að fara í stutta göngu.. svona um sex klst. göngu :d yfir í næsta fjörð og fyrir nesið, sem gekk mjög vel.. fyrstu fimm tímana en þá komum við að Kvannar kjarri sem náði alveg frá fjöru upp í kletta og eina leiðin var í gegnum Kvönnina eða jú að fara til baka..8| hélt ekki þannig að ég lét mig hafa það að brjótast í gegnum Kvönnina sem og ég gerði...:^) Afleiðingarnar... svaf næstu tvo daga, og var það sem eftir var af ferðini að  reyna að ná andanum og jafna mig eftir þvílíkt ofmæmis kast. Lífið má ekki vera of auðvelt.. er það? :lol:  Þetta var ekki allslæmt þar sem ég hafði nóg að lesa og gat farið í sund eins oft og ég treysti mér til. Þannig að í staðin fyrir að koma heim gengin upp að herðablöðum kom ég svo til endurnæð?? til baka. Heim ferðin var heldur ekki dans á rósum því að það sem átti að vera rúm klukkustundar sigling varð að rúmum þremur tímum því að daginn áður fékki báturinn drumb í skrúfuna og stútaði skrúfu númer tvö að þrem sem eru á svona bát.. og ekki var búið að laga skrúfu númer eitt... þannig að á heimleiðini var brunað á einn skrúfu með gubbuna upp í kok.  :^) 
Þrátt fyrir smá vesen á mér var þetta mjög gaman og gott að vera þarna og hópurinn sem ég var með var frábær að vanda.  



» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 21:26:05 / haflina

Leigði út íbúðina... 8| skipti um vinnu... ;) flutti búferlum...:lol:

Halló:!::!:

Þá er kominn tími til að uppfæra þau ykkar sem droppa hér inn.
Það hefur ýmislegt gengið á hjá mér í sumar. 
Leigði út íbúðina... 8| skipti um vinnu... ;) flutti búferlum...:lol:
Mánaðarmótin júlí-ágúst leigði ég og Snúður út íbúðina og fluttum heim í sveitina, mömmu og pabba til mikilar ánægju :haha: en bara í smá tíma á meðan verið er að greiða úr íbúðar málum í Búðardal, þar sem ég er farin að vinna og vinnustaðurinn er Silfurtúni.. og já, ég er búin að yfirgefa Loftorku... nánast, ég vinn þar einn dag í viku, ég gat bara ómögulega slitið mig frá lagermúsunum og verkstæðisrottunum.  :haha: tala nú ekki um treilerbílstjórana ;)
Ég bauð Indriða yfirlagermús að vinna einn dag í viku, þetta hentar mjög vel því að ég er í Freyjukórnum og ætla að mæta á æfingar í vetur, sem er á miðvikudagskvöldum og vinn þá í Loftorku á fimmtudögum. 
Svo er Rúnar bróðir og Co flutt líka heim, hann ætlar að vinna við smíðar og Bryndís fer að vinna á leikskólanum í Búðardal... þannig að það verður fjör hjá okkur í vetur, húsið fult að einstaklingum á öllum aldri og húsdýrum af ýmsum tegundum. 8|
Þannig að þið sáið að það er nóg að gera hjá mér og það verður nóg að geta.

Þetta er komið gott í bili.
Hafið það sem allra best.
Kveðja

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 00:01:24 / haflina

Halló

Halló

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 02:27:12 / haflina

Jæja, þá er að blaðra smá.

Halló.

Það er ár og öld síðan ég missti mig á blogginu síðast og það má nú segja að það hefur ýmislegt gerst á þeim tíma.
Ég er enn í Loftorku, en núna er ég kominn á Lagerinn... akstursstjórinn var ekki að höndla kvenmann undir stýri 8| sem er allt í góðu núna því að karlarnir á lagernum eru einstakir í sinni röð og hugsa vel um mig... og ekki má gleyma Tvistrass og Tvistbossa sem eru verkstæðisrotturnar okkar, þeir eru líka frábærir og reyna mikið að telja mér trú um hvert hlutverk konunar er í þessum heimi... þar kemur við sögu undirgefni og að stjana við manninn, ekki alveg mínir eiginleikar :)  en það má alltaf reyna að hafa áhrif. 

Núna er ég komin í tveggja vikna sumarfrí/fæðingarorlof og ætla að eyða því heima í sveitinni á næturvöktum og taka á móti lömbum eins og ég hef alltaf gert á vorin síðustu tuttugu árin. Þetta er einn að mínum uppáhalds tímum, að taka á móti lömbum og kyrrðin sem er yfirleitt á næturnar á þessum tíma árs. umm, æði. Einnig verð ég að vinna i Silfurtúni fyrir mömmu aðra hverja helg í sumar... geri allt fyri mömmu mína :haha:
Svo í byrjun ágúst ætla ég norður á Strandir í viku með sama hóp sem fór á Hornstrandi fyrir tveimur árum. Og um miðjan nóvumber fer ég í helgarferð/ævingarferð til Prag með Freyjukórnum. Þannig að það verður mikið að gera hjá mér í sumar og haust.

Á þessu tímabili hefur:
Fjölgar í fjölskylduni þar sem að Rúnar og Co fengu annan strák 13. okt. síðastliðinn sem fékk nafnið Kristján Snær, og er alveg agalega flottur.. eins og jú, við öll hinn í ættinni að sjálfsögðu...:haha::haha:

Tása kisan mín dó í nóvember síðastliðin, enn hún hefði orðið sautján ára núna í apríl ef hún hefði lifað. Og Snúður alltaf spkækur.
Mamma og pabbi eru komin með þriðja hundin sem kallaður er Lappi þar sem Rósa vill ekki sjá Tímon til undaneldis. Svona er þetta kvenfólk í þessari fjölskyldu. :d

Og af íbúðinni minni er það að frétta að þeirr komu loksins í lok apríl til að klára það sem eftir var að gera í íbúðunum og sameignini eftir að þeir fréttu að við værum í viðræðum við lögfræðing og óskuðu eftir því að klára þetta í góðu ... ekki búnir enn. :^):^) eins og vanalega var eitthvað gert en ekki klárað. :whut: :whut:

Að lokum langar mig að óska öllum þeim sem að ég af einhverjum óviðráðanlegum orsökum hef ekki haft rænu á að senda afmæliskveðju til á einn eða annan hátt á tímabilinu. Vonandi eru þessar óviðráðanlegu orsakir ekki komin til að vera.
:!::!::!:  Til hamingju með afmælið  :!::!::!:

Þá er kominn timi til að ljúka þessu.
Þar til seinna..
Lagerlína.


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 23:11:37 / haflina

Draumurinn hefur ræst.

Halló.
Þá er tími til kominn að blaðra smá.
Ég er hætt sem steypustöðvarstjóri og er að láta lang þráðan draum rætast 8) ég er nefninlega að keyra Treiler :D  fyrir Loftorku og er búinn að gera það í rúman mánuð og vinnu tíminn frá sex á mornana til sex, sjö, átta eða níu á kvöldinn. Ég byrjaði á því að keyra möl í hálfan mánuð og svo núna síðustu tvær vikur hef ég verið að keyra til Reykjavíkur með steypu rör, loftaplötur og holplötur, það er búið að kyrrsetja mig tvisvar vegna þess að farmurinn sem ég var með var of þungur :lol: ég reyndar bauðst til að hoppa út úr treilernum í fyrra skiptið en það dugði ekki til :haha: :haha: Ekki má gleyma að síðasta föstudag bar upp á 13 og að sjálfsögðu var eitthvað að gerast og í þetta skiptið varð ég stopp í föstudagsumferðinni upp á höfða um klukkan sex, það nefninlega gaf sig aðalloftslangan og vagninn ferstist í bremsu og ég gatt mig hvergi hreift 8| ÆÐI.... NOT Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað aðrir bíllstjórar sem voru á sömu leið og ég hafa verið ánægðir.. :^) já, líklega svona..:^) en allt fór á besrta veg og ég kláraði daginn klukkan að ganga ellefu um kvöldið.
Ég og föstudagurinn 13 erum að verða miklir vinir.. ;) þetta hefði geta verið verra, smá umferðar teppa milli fimm og sex á föstudegi, er það ekki í lagi :lol:
     
Það er allt gott að frétta, ég fór á Írskadaga á Akranesi síðustu helgi, þessa helgi var mér boðið í mat hjá Erlu og Hjalta í gær og í dag fleyngdi ég mér til Reykjavíkur með Erlu og næstu helgi ætla ég að fara á Bryggjuhátíðina á Drangsnesi. Það er mikið að gera í að skemmta sér þetta sumarið því að ég smelti mér á Bílladaga á Akureyri um 17 júní og  "Ó MITT GOT" þar fengu hnjáliðirnir að kikna og munnvatnskirtlarnir höfðu varla við... ekkert smá flottir.. BÍLAR 8).
Jæja, ætli þetta sé ekki komið gott og á morgun verð ég heilu ári eldri en í dag.
Þar til seinna... Trukkalína 

 

     


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 23:36:28 / haflina

Enn og aftur...

Halló.

 

Þá er það föstudagurinn þrettándi í öllu sínu veldi og gott betur. 8|8|8|

Ég verð nú að segja að ég er frekar fegin að þessi dásamlegi dagur er að renna sitt skeið, sem byrjaði frekar rólega fyrir utan að ég reyndi að drekkja kettinum, flækti mig í handklæðinu og var næstum dottin niður stigan í leiðinni í vinnuna... hjúkket.. þegar í vinnuna var komið tók Konni (stofnandi Loftorku) á móti mér með út breiddan faðminn.. já, það er jákvæt.. ekkert að því, en þegar ég var á leiðinni upp hringstigan upp á skrifstofuna mína kom einhver askvaðandi á móti mér svo að ég gargaði úr mér og öðrun líftóruna og þar á meðal eyrað af einstaklingnum sem ég var að tala við í síman.. sorry :haha: Nú var komið að því að senda flotan út í steypuleiðangur, það áttu að fara þrír bíllar og steypudælan.. síðustu tveir voru aldrei sendir af stað því að bæði fyrsti steypubíllinn og steypudælan ferstur sig svo kirfilega að ég þurfti að senda hjólaskóflu til þess að draga þá upp og laga vegginn. :$ Svo áttti að gera aðra tilraun sem var svo hætt við Þá sendi ég einn steypubíll langleiðina út að Snæfelsnes með smá slettu. Eftir dágóðan tíma hríngdi bíllstjórinn í mig að sagði að það væri engin á staðnum til að taka á móti steypinni, þannig að ég hryngdi í mannin sem pantaði steypuna til að kanna hvers vegna það væri engin á steypustað?  þá var fátt um svör, sem var alveg skiljanlegt... ég sendi nefninlega steypubílinn á allt annan stað en hann átti að fara 8| það var lán í óláni að það var ekki langt á milli staðana, þar sem steypan átti að fara og þar sem steypan var, það var einn bær á milli. Og það bjargaðist allt. Svo að lokum þá var allt að vera búið, einingarhúsið var búið með bláa turninn og að þrýfa innanhússteypubílinn og bílstjórinn að fara heim þegar gamla steypustöðinn klikkaði hressilega og allt strand og við þurftum að kalla bílstjóran aftur í vinnu og keyra úr bláa turninum, og sú gamla var bara þryfinn, og við verðum að mokka upp úr grifjuni á morgun og koma þeirri gömlu í lag. Eftir þetta kom ég mér heim og ætlaði að hafa mig hæga sem eftir var af deginnum... það tókst hjá mér en Snúður var að gera einhverjar æfingar og var næstum kafnaður þegar hann reyndi að éta gerfi mús sem ég gaf honum til að leika sé.. :)

Svona var dagurinn minn

í billi Steypustelpa


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 23:07:49 / haflina

Ok, páskarnir búnir og sauðburður byrjaður.

Halló.

Það er alltaf gaman að fara heim í sveitina og þá sérstaklega um páskana, því að það er allt svo frábært, vor í lofti og mikil kyrð.. þó ekki í veðrinu.. Svo fékk ég smá forskot á sauðburðarsæluna sem að verður í maí. Það var nefninlega áætlað að um 80 ær ættu að bera um páskana.

Í sveitinni getur maður alltaf hlaðið batteríin og slappað af í kringum þá og það sem manni þykjir vænt um. Við vorum fjögur þessa páskana, mamma, pabbi Aron Viðar og ég. Föstudaginnlanga komu Erla, Hjalti og strákarnir hans í dags heimsókn .. Ó, Hjalti er unnustinn hennar Erlu og þau búa á Akranesi.

Sumardaginn fyrsta 19. apríl næst komandi förum við í Freyjukónum í Þorrlákshöfn að syngja ;) og svo daginn eftir föstudaginn 20. apríl förum við  til Vestmanneyja og verðum fram á sunnudag þar sem ég fer heim með fyrri ferðinni á undan öllum hinum svo að ég geti verið í afmælinu hjá Aroni frænda mínum sem að verður 6 ára 22. apríl.. já, hann litli frændi minn er að verða stór strákur. 8|

Svo fer ég í sumaarfrí 11. maí til að fara í sveitina og hjálpa foreldraeiningunum í sauðburði og verð þar fram yfir Hvítasunnnu.

Þetta er komið gott í bili.

Steypustelpa :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 05:25:51 / haflina

Seypubíllstjóri - umsjón um dreyfingu á steypu - Steypustöðvarstjóri.

Halló.

Það er mjög langt síðan ég hef látið sjá mig hér, en vonandi er ritstíflan endanlega farin.

Síðast var ég á leiðini til Loftorku hér í Borgarnsei og er þar enn.

Það má nú segja að það hefur mikið gengið á. Ég byrjaði mánudaginn 11. September í 8| fyrra… á steypubíll sem að gekk bara vel, og lítið sem ekkert um óhöpp né klúður…. mikil vinna, meira en á Akureyri og lengri vinnu dagar…. nema jú um miðjan október tókst mér að troða einhverju íblöndunarefni í augun á mér þannig að ég var frá í tvær vikur þar sem ég gatt með eingu móti opnað augun og var svo ílla ljósfælinn að hálfa var nóg.

Í byrjun Nóvember fékk ég annað verkefni en að stjórna steypubíll, mér var falið að stýra öllum steypubíla flotanum. Það var settur undir mig annar stóll sem var jú reyndar á hjólum og mér var falið að hafa umsjón um dreyfingu á útisteypuni og koma henni frá okkur.. sem að gekk vonum framar.. að ég held.

Í Janúar byrjun var mér boðin staða Steypuframleiðslustjóar hér í Borgarnesi sem og ég þáði.

Þetta er búið að vera hröð breytting hjá mér og mikið að gera sem er mjög gott. Hérna vinna um 280 mans og mikið af pólverjum, hlutfallið er 60/40 ef ekki 70/30 prósent pólverjum í vil…. Og það eru nokkrir í minni deild, ætli hlutfallið sé ekki um 60/40 present pólverjum í vil.

Núna er ég steypustöðvarstjóri með þýskan yfirmann og tala aðalega ensku í vinnuni.

Annars er allt gott að frétta, mikil vinna, íbúðin æðisleg og ekki má gleyma baðinu umm.. vel á minnst, ég er í kvennakór sem heitir Freyjukórinn, það er mjög gaman og líklega.það eina sem að ég geri annað en að vinna. Við héldum tónleika síðasta laugardag með Karlakór Kjalnesinga sem var frábært og vægast sagt kraft mikill kór þar á ferðinni. Á eftir fórum við í Fossatún sem ég mæli eindreigið með að fólk fari. Glæsilegur staður, á æðislegum stað og frábær matur.

http://www.steinsnar.is/default.asp?sid_id=15480&tre_rod=001%7C003%7C&tId=1

Ætli þetta sé ekki komið gott, þetta má ekki vera of mikið.

Að sinni Steypustelpa

Þetta dró ég á spámaður.is

9 stafir

Talan níu sýnir að þú veist innra með þér að lífið er eingöngu þungbært þegar hin ævarandi gleði er þér fjarri. Mikil alvara þjónar alls engum tilgangi.

Reynsla fortíðar eflir löngun þína til að takast á við velgengni í starfi. Hér kemur fram að þú hafir tekist á við þjáningar einhverskonar í æsku eða vandamál sem efla kjark þinn og vilja til að ná árangri. Þú býrð yfir styrk á við heilan her.

Ásetningur þinn skapar þér framtíð en þekking þín sýnir fortíð þína. Lærðu af fyrri mistökum og árangur næst fyrr en þig dreymir um.

Gleði, heilbrigði og allsnægtir einkenna framhaldið hjá þér.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 22:29:16 / haflina

Þrjú ár.

Það eru komin þrjú ár síðan Krissi kvaddi þennan stóra heima, sínu litlu fjölskyldu, ættingja og vinni.

Það var mjög erfit og sárt að kveðja hann eldri bróður minn fyrir þrem árum, og í dag sakna ég hans alveg óendanlega en sársaukinn er ekki eins ofboðslegur.. en samt sárt, og þannig verður það alltaf. Á ákveðnum dögum og við að ryfja upp minningar sem koma mér bæði til að gráta og hlæja hvort sem það verði eftir þrjú, fimm eða tíu ár.

Eins og sagt er að tíminn lækni öll sár, sem er að vissu rétt, en ég vil meina að með tímanum dofnar sársaukinn, en sárið opnast alltaf endrum og eins, til dæmis eins og á svona degi. En góðu og hlýju minningarnar sem fá mann til að brosa verða til þess að sárin gróa á milli þess sem þau opnast. Svo þegar frá líður gróa sárin hraðar en kannski ekki alveg... og kannski þurfa þau ekki að gera það...

Á svona stund hugsa ég alltaf til mömmu og pabba, Rúnars og fjölskyldu hans þar sem Geirmundur sonur Rúnars fær aldrei að kynnast Krissa nema eftir því hvernig við minnumst hans. Svo er hugur minn hjá ömmu og afa sem sakna hans óendanlega. Að lokum hugsa ég mikið til Erlu og Arons Viðars sem voru og eru litla fjölskyldan hans sem hann þurfti að kveðja svo fljótt, en ég veit að hann vakir yfir þeim og mun hitta þau aftur þegar þar að kemur, eins og okkur öll hinn.

Mig langar bara að þakka þér Krissi minn fyrir allar þær stundir og allar minnigar sem ég fékk að eiga með þér á þessum tíma, þó ég hefði ekkert haft á móti því að hafa þennann tíma lengri. En eins og þið vitið þá ráðum við ekki örlögum okkar en við ráðum hvernig við nýtum þann tíma sem við fáum.. þannig að elskurnar notið hann vel.

Í minnungu um bróður minn Kristján Viðar Hafliðason.


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 21:17:16 / haflina

Ég er ekki alvag hætt... þrátt fyrir smá hlé.

Jæja, þá er ég komin í Borgarnes og fyrir fullt og allt... fyrir utan hálfan mánuð sem að ég verð í Garpsdal á meðan mamma og pabbi fara til Rússlands í skógarpúkaferð  :haha:

Ástæðan fyrir því að ég er komin í Borgarnes er sú að ég var send heim í veikindarleifi vegna vinnuslys... Ó, já mér tókst að slasa mig eina ferðina enn, og örugglega ekki í síðasta sinn heldur. Það var þannig að ég var að vinna sunnudaginn 13 ágúst síðastliðinn og steypubíllinn minn vildi ekki fara í gang, þannig að ég þurfti að fara á annan steypubíll. Svo var sett  steypa í steypubíllinn og ég af stað. 8)  Þegar ég kom á áfangastað var ég að hlusta á útvarpið og var smá stund inn í bíll því að það var einhver stund í að ég færi að losa úr tununni, á meðan ég var að hlusta kom upp einkennileg lykt sem ég skildi ekkert í :S en hélt áfram að hlusta, eftir smá stund fór að rjúka reykur upp á milli sætana.. 8| þá fór mér ekki að standa á sama og sótti yfirmannn minn sem var á staðnum... sem betur fer.. hann komst að því að það var að byrja að kveikna í steypubílnum á bakvið útvarpið og sýndi mér hver var orsaka valdurinn. Þannig að ég klifraði upp og stóð í efsta þrepinu og þegar ég ætlaði að fara niður dett ég aftur á bak og lenti beint á hrygginn :( :(  ekki gott. Þannig að ér er komin heim og verð heima.

Svo byrja ég hjá LoftOrku ellefta september... já, ég er búin að átta mig á dagsetninguni og er bara ekki málið að tilkinna veikinda :haha: smá grín, ég efa að það  verði einhver hætta á ferðum.. það er líka búið að ráðstafa þessari dagsetningu svo eftirminnilega að ég held að það verði svoleiðis áfram. En aftur á móti held ég að 13 hvers mánaðar sé vara samur. :klikk:

Jæja gott að kveðja núna.

Borgnesingurinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 14:00:51 / haflina

Frændur mínir á ferðalögum

Aron í útlöndum.....

..en Geirmundur ferðaðist innanlands þetta árið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 13:43:28 / haflina

Breytingar.

Halló.

Síðast talaði/pikkaði ég eitthvað um breytingar og gott fólk hér koma þær... 8| Ég er nefninlega að fara að skipta um vinnu, ó, já ég er búinn að segj upp hjá Arnarfelli og ætla að far að vinna hjá LoftOrku í Borgarnesi.. minn heima bær ;)  Og það besta við það fyrir utan vinnuna, er að ég verð í íbúðinni minni og get þvegið þvott þegar mér hentar og hef heitt vatn... svona þegar ég borga reikningana mína..:haha:  og nuddbaðkar :lol::lol:

Þetta er það nýasta hjá mér á næstuni ætla ég að segja ykkur frá ferð minni á Hornstrandir og allt fjörið sem þar var og heimsókn mína til Helgu í Súðavík, þar fékk ég mjög góðar mottökur.

Bless að sinni. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 16:44:25 / haflina

Ár í Trukkabrasanum

Jæja, þá er rúmt ár síðan ég snéri algjörlega við blaðinu og fór að vinna við stórtækar vinnuvélar og Trukka hjá Arnarfelli. Þetta  hefur verið mjög atburðarríkut tími og mikið að gera, eins og þið sem hafið verið svo dugleg að fylgjast með mér hér á blogginu mínu, þá vitið þið að það hefur gengið á ýmsu! Allt frá smávægilegum fótasnúningi upp í að trukkurinn minn fór aftur á bak, fram af vegbrún og settist á aftur endan. 8| 8|

För mín hófst á Reyðarfyrði eftir smá viðkomu á Eyjabökkum. Á Reyðarfyrði var ég á gröfu með mann í skóflunn, eins og sum ykkar vita svo var ég á valtara í enn lengri tíma og eins og þið munið þá var hann ekki mjög hraðskreiður, þannig að ég fékk þann heiður að prófa þrja mismunandi valtara… og ég snéri mig.  :$

Þá var komið að Ufsarveitum uppi á Eyjabökkum rétt hjá Kárahnjúkum. Þar gekk á ýmsu. Útafkeyrslur, fetsi mig í drullu, mér var nærstum ýtt fram af vegkankinum með ýtu og gerði tilraun til að velta kollunni. Og ekki má gleyma för minni á Reyðarfjörð aftur þar sem að vörubíllinn settist á afturendann og Kárahnjúka þar sem við vorum að vinna undirbúnings vinnu fyrir gangnagerð þar sem trukkurinn minn húrraði aftur á bak fram af vegbrún  8|

Að lokum var ég send á Akureyri þar sem ég er á steypubíll og líkar það mjög vel. Um daginn var ég nokkra daga á hjólaskóflu og haugsetti 4000 rúmmetri af gömlu malbiki sem var brotið niður með forbrjótnum. Annars hef ég verið á steypubíll fyrir utan smá tíma þegar ég var sett í malarann, en það kom fljótt í ljós að það var ekki staðurinn fyrir mig þar sem að það er svo mikið ryk sem að kemur af grjótinu þegar það er malað, eins og mér er lagið þá átti ég mjög erfit með að anda og talandi um það, þá kom það upp að það urðu mistök við afgreiðslu á brauði sem átti að vera speltbrauð en var hveitibrauð ekki gott fyrir einstakling sem er með hveitiofnæmi. Þannig að ég fékk að fara á minn annan sterakúr.

Það hefur líka gengið ýmisslegt hér á eins og dælubíllarnir festast, stíflast og bila, minn næstum farinn á hliðina og nokkur ofnæmisköst. 8)

Annars er allt fínt að frétta enþá ekkert heitt vatn í skúrnum :whut:  og sturtan á verkstæðinu, en þar verður breytnig á því ástandi. :haha:  Undan farið hefur verið mikið að gera og ég hef verið að koma heim um klukkan hálf níu til tíu á kvöldin, þannig að það er bara unnið og sofið hér í menningunni.

Það má nú segja að líf mitt hefur verið viðburðar ríkt þetta rúma ár sem ég er búin að vera í trukka og stóra vinnuvéla brasanum hjá Arnarfelli og allt hefur farið vel.. eða öllu heldur fór betur en á horfðist á tímabilum. enginn skaði á mönnum né tækjum.

Það er nú ekki hægt að segja að mikið hafi gengið á hjá mér, eða hvað?  Já, ok bara svona.. oft-stöku-sinnum.. 

 

 



Bless í bili. Borgnesingurinn    

 

 



 

 




» 1 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 23:04:10 / haflina

Eitt ár enn.

Halló.
Þá eru þau orðin 31 árin sem ég er búin að afreka og vonandi verða þau 31 eða fleiri til viðbótar í komandi framtíð.
Á þessum tímamótum er ég búin að kaupa mér íbúð, er í góðri vinnu, á mína yndislegu ættingja, vinni og gæludýr, er 25 kílóum léttari og að lokum já :!: ég enn á lausu, þrátt fyrir að vera búin að vinna í rúmt ár þar sem er eiginlega bara karlmenn og stóran hluta af þeim tíma uppi á fjöllum. 8|  Þá hefur mér ekki tekist að landa þeim stóra enn. :klikk:  Ekki það að það voru ekki margir álitlegir, heldur það að þeir áttu krútt heima fyrir. Og þar sem ég er með ákveðna reglu sem er að látta frátekna karlmenn vera með öllu, varð ég annað hvort var að brjóta regluna.. sem kom ekki til greina :!: eða að leita á önnur mið. Á Akureyri er það sama, fráteknir...  nema kannski sá yngsti sem er... Oó, jæja það væri hægt að hegna mér fyrir að grínast með þetta :haha:  hann er jú bara 15 ára.. Ókei full ungur :lol:  þannig ég er en á lausu. En engar áhyggjur þetta gerist þegar þetta gerist. Eins og þruma úr heiðskýru lofti.
Ég enn á Akureyri í skúrnum sem enþá er ekkert heitt vatn, :whut: á mínum steypubíll :haha: og vinn oft 13 til 15 tíma á dag. 8|  Þetta er bara fínt, góður mannskapur og mikið að gera. Við förum með steypu um allt á Akureyri, um Eyjafjörð, í Hörgárdal,  á Lauga og í Fnjóskadal, þar sem er verið að byggja sumarbústaði í Lundsskógi rétt hjá Vagllaskógi í bunkum. Þar... vil ég meina að séu álög. :lol:  Í hvert skipti sem ég hef farið með steypu þangað á fer eitthvað úrskeiðis. Í eitt skiptið þá gekk allt vel, þar til við vorum að búa okkur til brott farar, þá festits dælubíllinn svo heiftalega að ég þurfti að hnuppla gröfu (hvað lyklarnir vori í henni) sem var í nágrenninu og draga dælibíllinn upp, það tók á annan tíma, en að lokum tókst að losa dælubílinn og við komum heim upp úr níu um kvöldið, þá var eftir að þrífa báða bílana og ganga frá. Annað skiptið þá stíflaðist dælan og það þurfti að taka rörinn í sunndur á mörgum stöðum til að finna hvar var stíflað. Þetta tók rúma þrjá tíma, svo þegar átti að pakka saman og fara þá vildu fæturnir á dælubílnum ekki dragast saman... :( það var ekki eitt heldur allt.. :(  að lokum þegar okkur tókst loksins að draga fæturnar inn var einn staður eftir enn lengra inn í skóginn.. Þar var ég  næstum því búinn að leggja steypubíllinn á hliðina :S :S  vegna þess að vegurinn var svo nýr og ekkert burðarlag að sandurinn skreyð undan þunganum af bíllnum og bíllinn rann til hliðar í hallanum, en það fór betur en á horfðist. ;)  Við vorum kominn til baka rúmlega átta um kvöldið og þá biðu okkar 60 rúmmetrar :!:  af steypu sem átti eftir að keyra út og það fara 8 rúmmetrar í hvern steypubíll. Þannig að þetta kvöldið eða öllu heldur nóttina hætti ég að vinna um klukkan tvö, skilaði 19 tímum þann daginn. Kvöldið áður var ég til rúmlega tíu.
Rútínan er: Vinna, borða, sofa, :lol: einns og í textanum  “Í háttinn klukkan átta...” svona þegar ég er ekki að vinna fram eftir. :haha:
Jæja, ætli þetta sé ekki komið go.. Nei, annars mig langaði að setja textan með sem var á spilinu sem ég dró á spamadur.is í dag og hugsunin var spurning um breytingar.
Þetta er textinn: 8| 8| 8| 
 

IV - Keisarinn

Þroski, áræðni, dugnaður, sjálfstæði og ekki síður reynsla þín kemur hér fram. Stöðuhækkun sem tengist starfi eða nýtt starf kann að vera framundan hjá þér.
Þú stendur frammi fyrir tækifæri sem sjaldan birtist og ættir að kanna möguleika framtíðarinnar gaumgæfilega. Ásetningur þinn og ekki síður skipulag og hagkvæmni mun leiða þig næstu misseri að settu marki. Nýttu þér lögmálið um velgengni og sjáðu hvernig innri máttur þinn og orka umhverfisins hjálpar þér.
Velferð náungans kemur þér lengra en þig grunar.

 

 

 

Kær kveðja Steypulína ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 16:18:04 / haflina

Eitt ár hjá Arnarfelli

Halló.

Ég er komin aftur og vonandi til að vera.

Í dag er tvenn skonar afmæli. Geirmundur á tveggja ára afmæli í dag og ég á eins árs starfs afmæli hjá Arnarfelli.

Þarf að fara að steypa, bæti meira við seinna....


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Leitarbox